Ég er búin að
predika yfir ykkur, aftur og aftur, hvernig við speglum okkur í öðrum og
hvernig allt sem við gerum er vegna þess sem við erum en ekki vegna þess sem
aðrir eru.  Enda aðrir við sjálf.
Svo nú ætla ég að sýna ykkur hvernig þetta kemur út í hversdagslegum athöfnum,
eins og þegar við stöndum frammi fyrir vali í kosningum.
Ég ætla að kjósa Ólaf í næstu forsetakosningum, nei annars ég ætla að kjósa
Dorrit.  Eða kannski bara Ólaf og Dorrit.
Hvers vegna?
Jú, það er vegna þess að þegar ég horfi á Dorrit, hlusta á hana, les fréttir af
henni eða hvað annað sem er og tilheyrir henni, þá sé ég hvatvísan, smá
ofvirkan, einstakling, með gott hjartalag og glaða lund, sem framkvæmir stundum
áður en skynsemin nær að stoppa hana af og breyta henni í virðulega,
alvörugefna, leiðinlega, forsetafrú, sem aldrei dytti í hug að stíga út úr
röðinni og klifra yfir girðingar.
Ég sé náttúrulega miklu meira en þessa upptalningu, en þetta er nóg til að
skýra mál mitt.
Og af því ég sé veröldina, eins og ég sé veröldina og allt sem í henni er, þá
veit ég að ég er alltaf að horfa á sjálfa mig.
Hitta sjálfa mig fyrir.
Ég er því í reynd að horfa á eigin hvatvísi, mína smá ofvirkni, mitt góða hjartalag
og mína glöðu lund.  Og vitið þið, mér
líkar það sem ég sé.
Og af því ég sé veröldina, eins og ég sé veröldina og allt sem í henni er, þá
veit ég hvað kodda hjal er ráðandi afl.
Skemmtilegt afl.  Við eigum sko
yfirleitt koddahjal við maka okkar.
Ég veit líka af hverju ég þennan maka, eða kannski frekar af hverju ég skilaði honum ekki aftur, það er af því hann passar svo vel við mig og mitt,
gott og vont.
Hann er nefnilega sá sem ég spegla mig í svona til daglegs brúks og mér líkar það
sem ég sé.  Oftast.
Og af því ég sé veröldina, eins og ég sé veröldina og allt sem í henni er, þá
veit ég að fyrst ég sé mig í maka mínum, þá sér hann sig í mér og ef hann sér
sig og mig eitthvað í líkindum við það sem ég er, þá er hann flottur, svona eins og
hann er.  Oftast.
Og ef þetta gildir um mig og maka minn, þá gildir þetta líka um ykkur og ykkar
maka, líka Ólaf og Dorrit.
Svo nú vitið þið hvers vegna ég ætla að kjósa Ólaf og Dorrit.  Það er vegna þess sem ég er, hvað ég er, og
sú staðreynd að mér líkar það svo vel.  Ekkert
annað.
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/MHbEy8Zwoac&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/MHbEy8Zwoac&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/MHbEy8Zwoac&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
en maður eyðir.  Ekki alveg minn stíll og
skapgerð, en samt eitthvað sem verður að gera.
Klipping er einn af föstu liðunum í mínu lífi, einu sinni í mánuði, hún er
orðin ansi dýr, að vísu misdýr, en samt allt of dýr.
Ég tók mig því til og hringdi milli staða til að fá upplýsingar um verð, það
rokkar frá kr. 2.500 og allt upp í kr. 6.900 fyrir klippingu mér til handa.  Svona til fróðleiks, þá jafngildir það verði
á 22 til 60 mjólkurlítrum.
En það var ekki það sem ég vildi segja, heldur hitt að í þessari litlu könnun
minni komst ég að því að það er til karlaverð og kvennaverð þegar kemur að
klippingu og oft er mismunurinn á verðinu kr. 1.000 og þá körlum í hag.
Það kostar nefnilega minna að klippa karlmenn en konur, samt eru sumir karlmenn
með mikið hár líkt og konur og konur með lítið hár líkt og karlmenn og bæði
kynin fá sér strípur og annað flott í hárið.
Mér fannst þetta afar fróðlegt og hringdi því í Jafnréttisstofu til að fá
upplýsingar um réttmæti þessa.  Þar hitti
ég fyrir skemmtilegan og fróðan starfsmann sem gaf sér tíma til að ræða við mig
um þetta mál, fram og aftur og aftur og fram.
Hjá honum fékk ég þær upplýsingar að þetta hefði komið upp á borð hjá
þeim en ekki farið lengra, enda hefur engin kvartað við þá undan þessu.
Ég komst líka að því að þetta er í reynd ekki leyfilegt eða löglegt og ef við
værum í Evrópusambandinu þá væri búið að leggja þennan mismunun af.
Eigendur hárfyrirtækja mega að vísu verðleggja þjónustuna eins hátt og þeir
vilja en þeir mega ekki mismuna kaupendum eftir kyni.
Ég verð samt að segja að ég er ekki sátt við að konur, sem yfirleitt eru með
lægri tekjur en karlar, greiði meira fyrir þessa þjónustu en karlarnir.
Svo, stelpur mínar, nú er bara að mótmæla þegar þið farið næst í klippingu,
biðja um karlaklippingu fyrir stutt eða sítt hár, nú eða hringja í Jafnréttis-
eða Neytendastofu og láta í ljós óánægju með þetta misrétti og sjá hvort það
verði þá ekki leiðrétt.
Og ekki orð meira um það.
... og vatnið á Snæfellsnesi.  Þið vitið, fiskinn í sjónum, þessa eign þjóðarinnar þegar það hentar stjórnvöldum
betur og eign einhverra annarra, gjarnan einkageirans, þegar svo ber undir.
Eitt er allavega alveg ljóst, við erum ekki inni í dæminu sem raunveruleiki,
einungis sem tölur og hugmynd, sem hægt er að nýta sér til að græða meira, eftir
því hvaðan vindurinn blæs hverju sinni.  Þegar
markmiðið er að græða, þá eru það erlendir kaupendur, markaðsverðið sem ræður
afkomu landans, fátækum sem ríkum.
Ok kannski ekki ríkum, þeir fá gæðafæðið, fisk sem annað, gjarnan keyrt heim að
dyrum og borið inn, þeim að kostnaðarlausu, vildarvinskapurinn skiljiði.  Þú klórar mér og ég þér og allt það.
En hvað um það, hinir raunverulegu eigendur selja alþýðunni fiskinn á
markaðsverði sem aftur ræður því að margir hafa ekki efni á að kaupa hann, enda
markaðsverðið langt fyrir ofan kaupgetu sauðsvarts almúgans.
Ef almenningur væri í alvöru inni í myndinni og þá meina ég í alvöru, þá væri
löngu búið að setja lög og reglur um aflahluta til handa þjóðinni, sem seldur væri á
verði sem hún hefði efni á og á verði sem samræmdist raunverulegri afkomu fólksins
í stað þess okurverðs sem erlendur markaður gerir ráð fyrir og landinn þarf að
greiða í dag vilji hann fá fiskinn á diskinn.
Þannig er það bara.
Þetta sama á við um orkuna, hún er eign þjóðarinnar þegar það hentar og
einkaaðila eða einkafyrirtækja þegar svo hentar.
Við höfum ekkert með þennan arf forfeðra okkar að gera eða um að segja.  Pótintátarnir hafa tekið hann herfangi og
spila með hann út og suður sjálfum sér í hag.
Það er alveg ljóst að það verður þórðargleði á því heimili þegar búið er
að leggja sæstreng til annarra þjóða sem eru tilbúnar að kaupa orkuna á
markaðsverði sem síðan má yfirfæra yfir á sauðsvartan, íslenskan, almúgann.
Getið þið ímyndað ykkur hvernig það verður og hversu margir það verða sem ekki
geta keypt orkuna, þetta gull, þennan arf, sem forfeður okkar unnu baki brotnu
til að koma á koppinn og færa okkur með glöðu geði, svo við mættum eiga betri
ævi í þessu á stundum kalda land.  Þeir verða
margir það er alveg víst.
Nákvæmlega þetta gildir um alla okkar sameiginlegu auðlegð.  Hún er okkar þangað til hægt er að eigna hana
öðrum til að selja okkur á markaðsverði.  Græða á.
Sjáið bara vatnið á Snæfellsnesi, vatnið sem verður sífellt verðmætara og stórfyrirtæki reyna að læsa klónum í, sveitafélagið gerði sér lítið fyrir og seldi það kanadískum fjárglæframanni (Spork) til 95 ára, greitt með hlutabréfum í fyrirtækinu, sem fór svo á hausinn, hver fékk svo rústirnar, ekki spyrja mig, sennilega sami maðurinn, allavega á sá sem tók við rústunum vatnsréttindin á Snæfellsnesi til næstu 95 ára, næstum í heila öld.  Ef þetta er ekki landráð, þá veit ég ekki hvað landráð er.  Menn kunna ekki að skammast sín.
Enn og aftur, þannig er þetta bara.
Vitiði, ég held ég sé búin að fá upp í kok á þessu öllu.  Að hafa skoðanir, að blogga, að mótmæla, að
vona og bíða eftir betra og réttlátara samfélagi.  Öllu. Ég hreinlega nenni þessu ekki lengur.
Ég held ég segi bara eins og Styrmir, Ísland er ógeðslegt land, þetta er allt
hreinasta ógeð og það er ekki nokkur áhugi fyrir að breyta neinu eða bæta.
Stundum er bara komið nóg og þá getur maður bara sagt eins og kerlingin forðum,
hver sem hún nú annars var, þetta er leiðinlegt leikrit, ég er hætt, farin,
nenni ekki að vera með í þessu leiðinlega leikriti lengur.  Bæ.
Og ekki orð um það meir.
ih/grumpy old/12
... fyrirbrigði sem fundið hefur verið upp.  Ég myndi vilja taka í höndina á þeim sem fann
hana upp.
Það er frá henni sem ég er komin og hún hefur verið mér góð og gjöful alla tíð
síðan.
Hún skóp mig þannig að ég sé ekki framaníið á mér, reyndar sé ég nánast ekkert
af sjálfri mér nema hendur og fætur, sem ég get skoðað frá öllum hliðum.  Frábær sköpun.
Þetta allt gerir mér kleift að trúa því að ég sé alltaf jafn gömul þeim sem
ég tala við, svo fremi að þeir séu orðnir tuttugu og fimm ára í annan endann og fimm árum
yngri en ég í hinn.
Ég get ekki samsamað mig gömlu fólki því eg er ekki komin á það stig ennþá.  Eftir því sem ég get best séð svona álengdar, hjá þeim sem þangað eru komnir, þá kemst ég sennilega aldrei á það stig.
Amma mín sagði til dæmis alltaf stelpurnar um eldgamlar, sjötugar kerlingar og hún harðneitaði að fara á elliheimili, sagðist ekki nenna að vera innan um gamalt fólk allar stundir, samt var hún sjálf hundgömul, næstum níræð.
Náttúran var ekki eins gjöful gömlu skólafélögunum og öðrum jafnöldrum mínum,
það er hreint skelfilegt að sjá hvernig hún hefur farið með þetta annars ágæta
fólk.
Þau eru eins og gamalmenni, skökk og skæld og jörðin er farin að toga þau svo fast
til sín að húðin á þeim er farin að vísa niður á við.  Strákarnir hafa eignast ístrur og trúið mér
þær lafa niður yfir buxnastrenginn og brjóstin á stelpunum eru farin að hanga
ansi mikið, jafnvel þó þær reyni að toga á móti með brjóstahöldurum, og hálsinn,
almáttugur minn, hann orðinn eins og kalkúnaháls há sumum. Mér sýnist þó að þau
sem fylla hæfilega út í skinnið komi best út, það má næstum setja samansem merki
á milli grannur og hrukkóttur.
Þetta með spegilinn er náttúrulega bara plat, hann sýnir bara þá mynd sem ég bý
til í heilanum og hún er mjög flott get ég sagt ykkur, þar er ég ung, teinrétt,
stinn og fögur.
Mikið er ég þakklát náttúrunni fyrir að vera mér svona góð og fara svona vel
með mig.
ih/11
... karl og kvenn, hvers vegna er þjóðin svona
reið og óánægð?
Ég skal segja ykkur það.
Alþingi er þéttskipað fólki sem hefur stofna lokaða klíku, klúbb, utan um
athafnir sínar sem mestmegnis felast í því að raka til sín fé og völdum á kostnað
almennings og sá kostnaður er orðinn ansi hreint hár.
Nei Bjarni Ben, þjóðin er ekki bara að mótmæla ríkisstjórninni og hennar
gjörðum, heldur öllu liðinu sem starfar á þingi, öllum þingmönnum og ráðherrum,
embættismönnum og öðru starfsfólki.  Öllum
pótintátum þessa lands, atvinnurekendum, bankaeigendum, verkalýðsforystu og og
og.  Öllum.
Af hverju?  Ég skal sýna ykkur það hér svart
á hvítu.
Á vefsíðu eyjarinnar er fjallað um grein eftir Stefán Jón Hafstein í Tímariti Máls og Menningar 3. 2011 þar
sem hann  lýsir þessu afar vel og nákvæmlega og
miklu betur en ég nokkurn tíma gæti gert.
Greinin heitir Rányrkjubú og fjallar
um aðdraganda og orsök hrunsins frá ýmsum hliðum, hliðstæður íslensks samfélags
og nýfrjálsra ríkja í Afríku sem og íslenskt samfélag sem ættbálkasamfélag þar sem
menn umgangast auðlindir þjóðfélagsins eins og herfang sem höfðingjar útdeila
til þeirra sem sýna þeim hollustu.
Ég gæti ekki lýst og orðað það sem veldur óánægju og mótmælum almennings betur
en Stefán gerir i greininni og ætla því alfarið að nota hans orð hér.
Ég mun samt stikla á stóru, brot hér og brot þar og setja svo inn tengingu á skrifin
um skrif Stefáns sem og viðtal við hann hjá Jóni Ormi Halldórssyni og Ævari
Kjartanssyni í þættinum Landið sem rís á Rás 1 síðastliðin sunnudag .  Tengingarnar eru bæði hér í upphafi og enda þessara
skrifa.  Smellið hér á Eyjuna og hér á útvaprsviðtalið .
Hvernig ætlum við að breyta því sem vont er í það sem er betra ef við viljum
ekki horfast í augu við það vonda og vitlausa sem við höfum gert.
Ég hvet ykkur því eindregið til að lesa og hlusta á það allt í heild sinni.
Hefst nú lesturinn:
„Sú kynslóð stjórnmálamanna sem senn hverfur af
sjónarsviðinu hefur verið öflugasta sjálftökulið allra tíma á Íslandi.  Þau borguðu ekki námslánin sín, þau borguðu
ekki húsnæðislánin, þau tóku sér ríflegri eftirlaunarétt en aðrir fá, og afnámu
erfðaskatt um það leyti er foreldrar þeirra kvöddu heiminn!“
Og Stefán Jón spyr: „Rísa menn undir því verkefni að endurskapa lýðveldið? Eða
ætlum við bara að opna búðina eins fljótt og hægt er fyrir „business as
usual“?“
„Afleiðingin af
þessu skipulagða and-verðleika samfélagi er mjög slæm fyrir Ísland vegna smæðar
samfélagsins. Heilbrigð samkeppni, ögun og þjálfun sem menn sækja til að nýta
verðleika sína þrífst ekki.
Fyrirtækin eru
rekin af vel tengdum pabbadrengjum, stjórnmálin af sérhæfðum valdafíklum,
kerfið af þiggjendum og sporgöngumönnum – en ekki sjálfstæðum leiðtogum.
Íslenski samfélagsskólinn er fámennur, veikur og letjandi. Hér glímum við ekki
bara við það að pólitískum venslamennum er hyglað – smátt og smátt læra hinir
að ekkert þýðir að bjóða fram krafta sína. Við fáum ekki bara kerfi sem
upphefur þá löku heldur rekur burt þá hæfu. Niðurstaðan er rökrétt: Öll pólitík
verður persónupólitík. Ef til vill er höfuðgallinn við kenninguna um frjáls-
hyggjuhrunið að gleyma þessu grundvallaratriði í íslenskri stjórnmálamenningu:
Hún er óskiljanleg ef menn vita ekki hver er hvurs og hvurs er hvað.“
„Ég hélt lengi vel að Ísland með „sína
sterku lýðræðishefð“ og nýfrjálsu ríkin í Afríku og víðar væru ósambærileg.  Eftir því sem fleiri steinum var velt í
Hruninu, og allt fram á þennan dag, og meira og meira ógeð kemur í ljós, verður
manni hugsað til afríska ástandsins.
Hvar tæma menn seðlabanka?  Hvar eru
auðlindir settar í fárra manna hendur?  Hvar eru ríkisfyrirtæki afhent klíkubræðrum?  Hvar eru kjánasamningar gerðir við erlenda
auðhringi?  Hvar var Kalda stríðið notað
í auðgunarskyni fyrir fáa útvalda?“
Stefán líkir íslensku samfélagi við nokkurskonar ættbálkasamfélag,
höfðingjaveldi sem byggist ekki á rétti og verðleikum heldur úthlutun
lífsgæðanna, herfangsins, til þeirra sem sýna ættbálknum hollustu.  Hann skoðar og aðdraganda og orsök hrunsins
frá ýmsum hliðum sem og hliðstæður í íslensku samfélagi og nýfrjálsum ríkjum í
Afríku og telur að vinstri menn geti ekki flúið ábyrgð sína af þeim
vinnubrögðum sem hér hafa tíðkast eða fleygt allri sök í fang frjálshyggju
síðustu 20 ára:
„Tímabilið einkennist þó vissulega af einum þræði frjálshyggjunnar, sem er
auðhyggja.  Ójöfnuðurinn sem stórjókst á
Íslandi á sama tíma er ekki hugmyndafræðilegt keppikefli frjálshyggju í sjálfu
sér þótt stundum sé hann óhjákvæmilegur fylgifiskur.
Hvers vegna mótstaðan klikkaði er svo löng saga, en í stuttu máli voru það
„pólitísk uppkaup“ arðræningjanna.
Enn, þremur árum eftir Hrunið, eru íslenskir vinstrimenn í slag við
frjálshyggjuna þegar þeir ættu að einbeita sér að spillingunni. Því hún er
kjarninn í íslensku leiðinni.“
„Það mætti ætla að í okkar einsleita og smáa þjóðríki séu kjöraðstæður til að
koma í veg fyrir böl margra Afríkuríkja – ættbálkaskiptinguna (tribalism).  Samkvæmt henni kemur ættbálkurinn fyrst,
þorpið, staðurinn, frændur og vinir – hópurinn.  Abstrakt hugmyndir eins og „almannahagsmunir“,
„gagnsæi“, „stjórnsýsla“ „valddreifing“ eru merki um miklu þroskaðri samfélög
þar sem búið er að setja regluverk um samskipti í stjórnmálum, efnahagslífi,
félagsmálum og menningu.  Ísland er miklu
nær ættbálkasamfélaginu. Þetta sjáum við í hegðun stjórnmálaflokka,
landshlutaafla í gegnum „heimamannasyndrómið“ þar sem hollusta við hjörðina
kemur á undan hugmyndafræðilegum átökum eða verðleikum. Hollusta er forsenda
þess að fá að njóta afraksturs.
Höfðingjaveldi er skýrt einkenni á svona kerfi. Höfðinginn kemst í
úthlutunarstöðu (ráðherra, landsbyggðarþingmaður, formaður, stjórnandi í
úthlutunarnefnd, stjórn Byggðastofnunar eða annarri sjóðastofnun). Fólk þarf að
biðla til höfðingjanna, í stað þess að gagnsætt kerfi skipi því rétt sem það
sækir.  Höfðingjar vilja ekki að
almenningur hafi réttindi, heldur sæki til þeirra persónulega og fái úthlutað
af náð.  Verðmætum og vegtyllum er dreift
af höfðingjum sem ríkja í krafti „ættbálksins“.  Því ógleggra sem regluverkið er og ógagnsærra
því betra fyrir höfðingjaveldið.  Eitt af
lykilatriðum í því er að valdsskorður séu óskýrar og viðurlög nánast engin, svo
auðvelt sé að taka áhættuna af því að skandalísera öðru hverju.“
„Nokkur framfaramál í íslensku samfélagi hafa orðið utan við stjórnmálakerfið.  Því saga Íslands er ekki svartnætti og
margvísleg jákvæð þróun hefur orðið.“
Stefán týnir þarna til
jafnréttismál, vitundarvakningu um ofbeldi einkum kynferðisofbeldi, kraft
fólksins til breytinga, samkynhneigða sem unnið hafa þrekvirki í að breyta
samfélaginu umhverfisvernd, meðferð
alkóhólista og fleiri mál sem sprottið hefur upp úr samfélaginu utan við
kulnaðar smiðjur stjórnmálaflokkanna.
Þessi dæmi segir hann, og vinna stjórnlagaráðsins, vísa veg um aðferðir sem má
nota kerfisbundið til að opna samfélagið.  Virkja aflið í fólkinu.  Laga kerfið svo það verði farvegur fyrir
lýðræðislegan þroska.  Setja
höfðingjaveldinu skorður.  Greina vald
frá hagsmunum.  Stóra verkefnið er hvorki
meira né minna en lýðræðisvæðing Íslands.
Allt miðar þetta að aukinni hagsæld á breiðum grundvelli, en ekki nauðhyggju um
hagvöxt. Hægvöxtur væri nær lagi núna.  Og
aukinn jöfnuður.  Jöfnuður er
þjóðhagslega hagkvæmur.“
Lestri lokið.
Þetta elskurnar mínar er ástandið á Íslandi í dag og undanfarin ár.  Þetta er það sem þjóðin býr við og reynir að
mótmæla með góður og eða illu.
Þið hljótið að geta samsamað þessu því sem þið þegar þekkið, álverum, virkjunum, Magma, Kína, eignarhaldsfélög, kvótasvindl, kúlulán, skuldaafskriftir miljónamæringja, heilu bankarnir og þar með innistæður okkar að gjöf til vogunarsjóða og endlaust og endalaus hrosskaup, svindl og svínarí.
Og hverjir borga?
Einmitt almenningur, með skattahækkunum, lækkun launa, hækkun verðlags og og og.  Hugsið ykkur verkalýðsforystan semur um 161 þúsund króna lágmarkslaun til handa vinnandi fólki og allir pótintátar þessa lands segja það allt í lag og gott eitt.  Ég get orðið svo reið að engu tali tekur.
Hvað ætlum við að láta þetta ganga lengi?
Við eigum að vita þetta, verðum að vita þetta allt, ef við ætlum að byggja upp nýtt
og betra samfélag.
Hvernig ætlum við að breyta því sem er vont í það sem er betra ef við viljum
ekki horfast í augu við það vonda og vitlausa sem við höfum gert?
Við veðrum að þora og nú er tækifæri til breytinga.  Lesið greinarnar og hlustið á viðtalið.
Smellið hér á Eyjuna
og hér á útvaprsviðtalið
ih/11
... barna til náms og skylda skólayfirvalda, af alvöru og óhrætt, væri hægt að gera eitthvað fyrir æsku þessa lands,
börnin okkar og komandi kynslóðir.
Þá gætu skólastjórnendur og önnur skólayfirvöld ekki alltaf og endalaust borið
fyrir sig og sett fram þá staðhæfingu að það sem gerist utan skóalóðar komi þeim
ekki við.
Það er það sem skólayfirvöld gera, ítrekað og aftur, einelti og annað ofbeldi, sem
nemendur þurfa að þola, kemur skólayfirvöldum ekki við gerist það utan
skólalóðar.
Það sem gerist utan skóla er ekki þeirra mál, einelti sem leiðir til sjálfsvígs
og kynferðisleg misnotkun á ungum nemendum kemur skólayfirvöldum ekki við þar
sem það gerist utan skóla og skólalóðar.
Ég gæti gubbað.  Hvernig geta menn, karl
sem kvenn, látið svona út úr sér, þeim á að koma við vellíðan barna utan og
innan skóla.  Okkur á öllum að koma hún
við.  Annað er ómennska.
Fyrir mér horfir þetta þannig að börn eru algjörlega óvarin þegar þau ganga út
af skólalóðinni og á leiðinni heim frá skóla, þar má mæta þeim nákvæmlega það
sem hverjum og einum sýnist, einelti, eiturlyfjasala og hvers konar annað
ofbeldi því eins og skólar hafa, ítrekað og aftur, sagt, þetta kemur þeim ekki
við.
Það er raunverulega staðreynd að börn hafa skylduna til að láta allt yfir sig
ganga og skólayfirvöld réttin til að láta það yfir þau ganga, sem þeim hugnast best.  Þau gætu neytt nemanda til að mæta í skóla í
lögreglufylgd og hafa reyndar oftar en einu sinni og tvisvar beitt því á börn
og þannig þvingað fram vilja sínum, því þeirra er rétturinn en barnanna skyldan.
Það er staðreynd að yfirvöld, skóla og annarra sem með velferð barna hafa að
gera, hafa brugðist þeim ítrekað og aftur.
Mörg okkar hafa reynt það á eigin skinni og aðrir séð það reglulega og
aftur í fjölmiðlum þessa lands.
Hvenær ætlum við að vaxa úr grasi og gerast vitibornir og mennskir menn, karl
og kvenn, og snúa þessum andskota við?
Þegar búið er að snúa þessu við þá verða skólayfirvöld að sjá til þess að
börnin fái mannvænt umhverfi sem gagnast þeim til fræðslu og annarrar skólunar.  Þá hefðu þeir ekki vald til að skylda og
neyða börn til eins eða neins sem ekki hentaði þeirra velferð og væri þeim
jafnvel til mikils ógangs og skaða.
Efir hverju erum við að bíða, að eitthvað gerist af sjálfu sér, af því við erum
svo vön því að allt leysist að sjálfur sér, að stjórnvöld hafi hag okkar og barna
okkar að leiðarljósi.
Það hefur einmitt sýnt sig svo vel núna eftir blessað hrunið.  Allar ókeypis skólamáltíðirnar og úrræðin, heimilin
sem búið er að leysa til bankanna.  In your
dreams.
Það er núna sem við verðum að standa upp og breyta þessu kolvitlausa kerfi,
snúa því á hvolf, afhenda börnunum réttin og skólayfirvöldum skylduna, alla
eins og hún leggur sig.
Börn eiga rétt til lífs og lima, fræðslu, verndar og velferðar og það á að vera
skylda fullorðinna að sjá til þess að það gangi eftir, skólayfirvalda, kennara,
foreldra og okkar allra.
Og ef og þegar við sjáum að einn hlekkur bregst þá eigum við að grípa inn í og
lagfæra ástandið svo barnið haldi rétti sínum út í eitt.
Síðan þegar þau komast nær viti og ára á að færa þeim skyldurnar gagnvart næstu
kynslóð hægt og rólega og í samræmi við skilning þeirra og getu.
Getið þið ímyndað ykkur hvernig það samfélag væri, sem þannig væri háttað um,
og hvernig einstaklinga það æli af sér?
Nei sennilega ekki, þá væri búið að breyta þessu nú þegar.
ih/grumpy
old/11
Mér fannst þetta svolítið fyndið, því þetta er saga af kerfi sem verður til fyrir kerfið, að því best verður séð.
En þetta er ekki alltaf fyndi, stundum er þetta sárt, niðurlægjandi, vont og meiðandi fyrir fólk, sér í lagi gamalt fólk.
Það er nefnilega þannig að þegar annar aðilinn í hjónabandinu verður of veikur og illa haldinn til að vera heima þá á hann ekki annarra kosta völ en að fara á öldrunarstofnun.  Makinn fær ekki sjálfkrafa að fara með, hann fær reyndar alls ekki að fara með nema hann sé álíka illa haldinn og þá fær hann ekki endilega að fara á sömu stofnun.  Þetta er nefnilega kerfi.
Sá sem fer, flytur nú inn á stofnun með misgóðri umönnun og þar verður lögheimili hans héðan í frá.
Þetta er að sjálfsögðu ekki ókeypis, ríkið greiðir daggjöldin að hluta eða öllu leyti eftir aðstæðum hvers og eins, en hafi vistmenn tekjur umfram 64.454 kr. á mánuði (eftir skatt) taka þeir þátt í greiðslu daggjaldsins.  Ellilífeyririnn fellur niður þegar fólk fer inn á stofnanir, þeir sem engar aðrar tekjur hafa eiga þá rétt á vasapeningum sem eru óskertir 45.288 kr. á mánuði.  Vasapeningarnir eru samt háðir öðrum tekjum eins og lífeyrissjóðsgreiðslum og fjármagnstekjum og falla niður fari tekjurnar yfir 64.454 kr. á mánuði.
Vá, hugsið ykkur heilar 45.288 kr. á mánuði.  Allt sem hægt er að gera fyrir það.  Verður spennandi að komast á þá jötu.  Frábært.  Eða ekki.
Fólk þarf að sjálfsögðu að nota þessa peninga til greiðslu á ýmsum þáttum lífs síns, eins og hársnyrtingu, fótsnyrtingu, tómstundaiðju og jafnvel þvotti, því þessir hlutir eru ekki lengur innifaldir í þjónustunni líkt og áður var.  Svo það er ekki mikið afgangs til fatakaupa og þátttöku í samfélaginu, brúðkaupum og afmælum og þess háttar.  Reynar er ekkert eftir til eins eða neins.
Sá sem heima situr er allt í einu kominn inn í gjörbreytt umhverfi, hann er ekki einungis búinn að missa makann, besta vininn, félagsskapinn, heldur og hjónabandið, sem er ekki lengur til vegna reglna um lögheimili, og fjárhaginn, sem verið hafði stöðugur um langt skeið og jafnvel góður, en er nú gjörbreyttur.
Ellilífeyrisgreiðslur makans og aðrar tekjur sem honum tilheyrðu og áður runnu til heimilisins eru farnar og allt er breytt.
Ef fólk á börn þá reyna þau að finna út úr hvað skal gera og hvernig, en það skiptir kannski ekki öllu, því það er ekkert hægt að gera.  Þetta er kerfi.  Sjaldnast fyndið oftast særandi, niðurlægjandi, meiðandi og sorglegt.  En það er bara þannig og því verður seint breytt.
Hverjir eru tilbúnir að rísa upp fyrir gamalt fólk á stofnunum, það er ekki eins og þau gefi mörg atkvæði í kosningum, er það?
Stjórnmálamennirnir okkar eru tryggðir, þeir eru búnir að koma sér upp eftirlaunasjóð sem tryggja þá bak og fyrir.
En vitið þið, fjöldinn á eftir að lenda í þessu kerfi, við hin.  Þessi venjulegu, sem strita í sveita síns andliti ævina út, eiga þetta í vændum.
Þetta er okkar framtíð og því ættum við að rísa upp og verja það fólk sem býr við þessi kjör í dag.  Okkar kjör á morgun og þá höfum við ekki þrekið, kjarkinn og það sem þarf til að breyta neinu.
Trúið mér þetta er ekki gæfuleg framtíð fyrir neinn, þó margir eigi ekki annarra kosta völ þá vilja allir heldur eiga annan kost.  Það er bara þannig.
Það er í dag sem við eigum að gera eitthvað í málinu, á morgun er það of seint.
Ekki orð meira um það.
ih/grumpy old/11
... ætti að vera réttur barna og skylda skólayfirvalda og því þarf að breyta strax.
Jón Gnarr kom fram með þá hugmynd fyrir stuttu, að leggja niður skólaskyldu.  Fáeinar mjóróma raddir hneyksluðust á þessari hugmynd hans, aðrar þögðu.
Ég man að ég skrifaði einmitt um þetta efni fyrir langa löngu og endaði greinina eitthvað á þessa leið, þegar börn voru skylduð til náms þá misstu þau allan rétt og hafa verið að missa hann æ síðan.
Vitið þið, þetta er rétt hjá okkur Jóni.  Það ætti að leggja niður skólaskyldu til handa börnum.
Börn eiga ekki að hafa slíkar skyldur með tilheyrandi valdboði og lögregluvaldi og þið skuluð ekki halda að því hafi ekki verið beitt á þau og það oftar en einu sinni og tvisvar.  Börn hafa verið sótt heim af lögreglu og fylgt í skóla í skjóli þessa valds, sama hvert þeirra viðhorf var eða ástæður.
Börn eiga að hafa rétt til alls konar hluta ekki skyldur.  Börn eiga að hafa rétt til náms, án skilyrða frá þeirra hálfu, síðan eiga stjórnvöld, skólastjórnendur, kennarar og foreldrar að hafa skyldu til að uppfylla þann rétt þeim til handa.
Það á að vera skylda samfélagsins, stjórnvalda, skólastjórnenda, kennara og foreldra, í þessari röð, að sjá til þess að börn njóti þessa réttar til fulls, í samræmi við getu og færni hvers og eins, sjálfum sér til gagns og gamans.
Í þessari röð vegna þess að foreldrar geta ekkert gert standi þau frammi fyrir misvitru og jafnvel fjandsamlegu skólaumhverfi, skólastjórnendur og kennarar geta ekkert gert standi þau frammi fyrir fjandsamlegum stjórnvöldum.  Börnin eru ekki inni í myndinni vegna þess að þau hafa engan rétt.
Með því að setja þennan rétt til stjórnvalda og þaðan til skólastjórnenda öðluðust þau vald til að haga sér alfarið eins og þeim sýnist, með eigin hag og afkomu í huga og með því brjóta gegndarlaust gegn börnum ef svo ber undir og hugnist þeim það.
Nú er ég ekki að halda því fram að það sé það sem skólastjórnendur endilega geri, en mörg eru sek um margt misjafnt, lélegt námsefni, mismunum á nemendum, einelti frá kennurum og fleira og fleira, og aðspurð, þegar upp kemst, er svarið við höfum engin úrræði, ekkert vald.  Kjaftæði.  Skólayfirvöld hafa vald til að misbjóða börnum og þau hafa vald til að hætta því.
Ef við nú færum réttinn til náms yfir til barnanna er hægt að gera kröfur um jöfnuð börnum til handa, ókeypis kennsluefni, við hæfi hvers aldurhóps og í samræmi við þann tíma og tíðaranda sem þau lifa á, ókeypis vettvangsferðir, þar sem enginn þarf að sitja eftir vegna fjárskorts, ókeypis skólamáltíðir svo ekkert barn þurfi að sitja frammi á gangi með þau efnameiri fara inn í matsal að borða.
Líf og afkoma barna á alltaf að vera þeim að kostnaðarlausu.  Alveg sama hvað.  Alltaf.
Jón Gnarr, þó ég sé eflaust um margt ósammála þér þá styð ég þessa hugmynd þína um að leggja niður skólaskyldu á börn, svo fremi hún verði færð yfir á skólayfirvöld og önnur stjórnvöld.
Því eins og ég sagði fyrir margt löngu, þegar börn voru skylduð til náms, þá misstu þau allan rétt og þau hafa verið að missa hann æ síðan.
Og hana nú og ekki orð um það meir.
ih/grumpy old/11
... trúað mér þegar ég segi að það sem aðrir segja er ekki endilega það sama og við heyrum og eiginlega aldrei það sama.  Við heyrum aldrei það sem aðrir segja, einungis túlkun okkar á því.  Alveg satt.
Við heyrum einungis í okkur sjálfum og viðbrögðin sem stundum verða til í samræðunum, reiði, gleði, móðgun, sorg, hamingja, rifrildi og annað í þeim dúr, skapast alltaf út frá því sem við heyrðum, aldrei því sem sagt var.  Við móðgumst, gleðjumst, rífumst um okkar eigin heyrn, okkar eigin viðhorf.  Ekkert annað.  Og það er algjör óþarfi.
Það er svo mikilvægt að gera sér grein fyrir hvað og hvernig við heyrum, hvernig við túlkum allt sem sagt er miðað við þekkingu okkar og reynslu, hvernig við erum í reynd alltaf á eintali við sjálf okkur.
Ekki að það sé ekki í lagi, það er þannig sem það er svo það hlýtur að vera í lagi, en ef við vitum það, gerum okkur grein fyrir hvernig þessu er háttað, þá getum við lagt niður allar afleiðingarnar, öll illindin og erjurnar.
Vitið þið við þurfum í reynd alls ekki að bregðast við því sem sagt er, því sem við heyrum.  Við þurfum ekki að rífast við aðra um orðin sem við sköpum í okkar eigin höfði, ekki heldur þó við höldum að við séum að heyra annarra tal og ekki bara okkar eigin hugmynd.
Það er samt auðveldara að leyfa illindunum svífa fram hjá sér þegar maður veit hvernig þau eru til komin.
Einn góðan veðurdag stöndum við vel flest í þeim sporum að eiga einungis eftir um það bil 15 jól, og miðað við að jólaskrautið er ekki fyrr komið í kassann að við tökum það upp aftur, þá sjáið þið að það er ekki langur tími og hann flýgur frá okkur.  Hvers vegna í ósköpunum ættum við að eyða þessum stutta tíma í erjur og önnur illindi.  Það væri bara hreinasta fásinna.
Ef við getum séð þetta, áttað okkur á þessu þegar svona er komið, hvers vegna þá ekki fyrr, svona 15 árum fyrr eða jafnvel lengra, jafnvel bara frá upphafi lífs okkar.
Það er nefnilega eitt í þessu sem við hugum ekki að fyrr en nær dregur grafarbakkanum, hvað það er sem raunverulega skiptir máli.
Flestir hugsa núna, fjölskyldan, vinirnir, heilsan eða annað álíka, og það er það upp að vissu marki, því öll viljum við að afkvæmum okkar vegni vel, en þegar þangað er komið og ef til vill ekki meira en 10-15 jól eftir, er aðeins eitt sem skiptir máli og það er makinn eða makaígildið.
Ég veit, margir hafa verið einir með sjálfum sér alla tíð eða um mörg ár svo fátt breytist hjá þeim.  En hjá hinum er það samt þannig, makinn eða makaígildið er það eina sem eftir er.
Börnin eru farin sína leið, búin að stofna fjölskyldur, börn og buru, eiga sitt líf og verða að fá að gera það, vinirnir eru holt og bolt, sumir farnir eða annað verra, eftir ákveðinn aldur fer heilsan smám saman að bila, alveg sama hvað menn reyna að halda í hana.  Já ég veit, flestir þekkja einhvern sem var svo hress og allt það, en það breytir engu hún fer á endanum.
Það sem eftir stendur er þessi mannvera sem við höfum aldrei hlustað á, heyrt í, einungis búið til hugmyndir um hvað var sagt. Makinn sem hefur fylgt okkur í gegnum sætt og súrt, áratugum saman, sem við höfum dásamað og deilt á, rifist við og elskað, erum búin að búa til heila ævisögu með og heila skáldsögu um.  Spurningin er bara hvort okkar fer fyrst og sá sem verður eftir er ekki endilega sá heppni.  Trúið mér.
Ég vildi óska að allir sæju hversu mikilvægt það er að vita og skilja að það erum við sem búum til veröldina sem við lifum og hrærumst í, hugmyndir okkar um og við og allt sem henni viðkemur er frá okkur sjálfum komið og í samræmi við það sem við höfum lært og reynt og ekkert af því er á annarra ábyrgð en okkar sjálfra.
Á sama tíma veit ég að fólk trúir þessu ekki, vill ekki hafa það þannig, vill ekki vera ábyrgt fyrir vitleysunni í eigin tilvist, svo það horfir út í heiminn, á hina, makann, börnin, vinina, stjórnvöld, bara eitthvað og segir, hann, hún það, þau eru ábyrg, ég er fórnalambið.
Það þarf samt ekki að vera þannig.  Það er hægt að stíga frá þessu, breyta hugmyndinni, taka ábyrgðina á eigin herðar og gera betur.  Það er víst hægt.
En, þetta fræga en, það er skítt að við skulum alltaf þurfa að finna upp hjólið aftur og aftur, hver og einn fyrir sjálfan sig, þegar við gætum svo auðveldlega tileinkað okkur annarra reynslu, prófað það sem aðrir segja.
En það virkar bara ekki þannig hjá flestum, er það, við heyrum einungis það sem hrærist í okkar eigin höfði og fyrst svo er þá verðum við öll að búa við þann veruleika sem við sköpum sjálfum okkur.
Það kemur samt að því einn daginn að við sjáum þetta sjálf, nú eða ekki.
Þess vegna hefur það enga meiningu fyrir mig að endurtaka sömu hlutina út í eitt, aftur og aftur, og alveg óhætt að hætta að tuða þetta í ykkur.
Ég vildi samt óska að þið gætuð trúað mér þegar ég segi að það sem aðrir segja er aldrei það sama og við heyrum.  Við heyrum aldrei það sem aðrir segja, einungis túlkun okkar á því.  Alveg satt.  Trúið mér.
ih/grumpy old/11
Miðbærinn liggur lágt miðað við sjávarmál, svo ef við fengjum gott flóð þá myndi hann hverfa undir vatn, og þá um leið Hringbrautin og flugvöllurinn og allt það svæði, ég byggi þá á lítilli eyju, sennilega við sjávarsíðuna þar sem hæsti punktur væri Landakotspítali og Kristkirkja, sem sennilega væru einnig við sjávarsíðuna.
Það sæi til lands hinum megin við Lönguhlíðina eða svo.  Grafarvogur færi að hluta undir vatn og einnig svæðið við Kollafjörð við Esjurætur.
Ef eldgos hæfist við Bláfjöll eða einhvers staðar á því svæði þá færum við varla burt um Vesturlandsveg, yrðum að fara í aðra átt, norður, í átt að Borgarfirði og þar fyrir ofan.  Það er bara um þessar tvær akstursleiðir að ræða út úr borginni.
Það er alveg ljóst að vegakerfið í borginni myndi ekki anna þeirri umferð sem myndaðist við neyðaraðstæður, Hringbrautin er nú þegar of lítil og reyndar allir vegir hvert sem litið er.
Sjáið þið okkur í anda aka upp Ártúnsbrekkuna til að komast út úr borginni, öll í einu í einni halarófu.  Það væri sko ekkert fyndið.  Jafnvel þó maður brosi smá að tilhugsuninni.
Held það væri skást að fá jarðskjálfta, jafnvel þó hann yrði harður og bæri með sér einhverjar skemmdir.  Það væri samt smá töff að búa á við sjávarsíðuna á lítilli eyju.  Það yrði samt að gerast á annan hátt.
Nei datt þetta bara si svona í hug þegar ég beið í bílaröð á Hringbrautinni, undir einni göngubrúnni og halarófa af bílum fyrir aftan mig og framan, langt upp fyrir Lönguhlíðina.
ih/grumpy old/11
En ég skil ekki náttúruvernd, eða þörf manna til að baða sig upp úr þeirri hugmynd.  Náttúran er ekki fyrir utan og neðan okkur, fyrir okkur að passa.  Þetta er gömul og úrelt biblíuhugmynd um mannskepnuna sem kórónu sköpunarverksins og náttúran mönnum gefin af guði, eins og gamlar bækur hafa tíundað.
Við erum þessi náttúra eins og öll önnur dýr og jurtir og ekkert merkilegri né mikilvægari en hvaða aðrir hlutar hennar sem er.
Ef við kjósum að menga og eyðileggja það sem að okkur snýr þá getur það bara verið náttúrulegt.  Jafnvel þó það leiði til tortímingar okkar sjálfra.
Náttúran sem heild þarf ekkert á okkur að halda sem slíkt, hvort við erum hluti af henni um aldir eða deyjum út á morgun hefur engin áhrif á hennar tilvist eða afkomu.  Reyndar er það svo að þau öfl sem náttúran er, sem heild, eru alltaf að þurrka út lífverur sem henta ekki inn í mynstrið og þetta gerist með og án okkar aðstoðar, oft án okkar vitundar.
Við gætum þess vegna horfið á morgun án mikilla vandkvæða fyrir restina af náttúrunni og þið getið verið viss um að gróðurinn og önnur náttúruöfl væru ekki lengi að þurrka út öll spor eftir okkur.
Mengun og ýmiskonar eyðilegging, styrjaldir, hungur og græðgi, svo fátt eitt sé nefnt, er okkar framlag til heildarinnar og þá um leið hluti af náttúrrunni, ef okkur hugnast það ekki þá getum við látið það hverfa, en eins og allir geta séð, þá er það greinilega mikilvægt okkur og þess vegna enn til staðar.
En það er allt í lagi, því fyrr eða síðar er það gengið til enda og hverfur með okkur.  Restin  af náttúrunni mun svo hreinsa upp skítinn eftir okkur og blómstra sem aldrei fyrr.
Þangað til ...
ih/grumpyold/11
Ég ætla ekki að túlka mínar tilfinningar fyrir því sem sagt var heldur hafa hér eftir það sem Ólafur hafði að segja um nýútkomna bankaskýrslu.  Þið getið síðan farin inn á vefsíðu Eyjunnar og horft á þáttinn frá í gær, 22. maí, efst í hægra horni, undir myndinni af Agli, slóðin er hér. Bankaskýrsluna má svo nálgast hér og PDF skjal af henni hér.
Ólafur byrjaði á að tala um  ákvarðanir fyrri ríkisstjórnar, Geirs og Ingibjargar, um flutning eigna frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju með miklum afslætti, þetta voru aðallega lánasöfn íbúðalána og fyrirtækja.   Menn höfðu áttað sig á að þessi lán stæðust ekki lög sem og að stökkbreyting hafði orðið á þeim út af gengishruni og óðaverðbólgu, þannig að bæði heimili og fyrirtæki stæðu ekki undir því að borga þau til baka.  Þetta var stefnan sem þá farið var eftir.
„Síðan þegar ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms tekur við þá var kúvent og horfið frá þeirri stefnu að gefið væri út skuldabréf í hverjum banka fyrir eignunum sem komu út gömlu bönkunum, skuldabréf sem hvers verðmæti miðaðist við þær afskriftir sem nauðsynlegar voru til þess að hér yrði ekki allsherjar hrun heimila og fyrirtækja.
Ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu ákveður að hverfa frá þessari stefnu og taka upp samninga við kröfuhafa gömlu bankanna, sem voru opinberir breskir aðilar og Seðlabanki Hollands, þetta var Icesave grúppan.  Það virðist nokkuð ljóst að þessi kúvending hefur einhverja tengingu við Icesave málið því þá voru að fara í gang viðræður um Icesave ...
Ríkisstjórnin virðist tengja Icesave og velvilja kröfuhafa gagnvart Íslandi við mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu ....
Niðurstaðan var sú að peningarnir sem voru klárlega til, peningarnir sem voru til  þess að aflétta eða leysa skuldavanda heimila og atvinnulífsins hér á Íslandi, það var búið að taka þá til hliðar.
Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir, tóku þessa peninga og skiluðu þeim til kröfuhafa og afleiðing þess er sú að það er ekki hægt að leysa skuldavanda heimila eða fyrirtækja.  Nýju bankarnir eru í  raun nokkurskonar innheimtu agentar fyrir kröfuhafa, og við skulum átta okkur á því hverjir þessir kröfuhafar eru, þetta eru ekki Deutsche Bank og þessir sem lánuðu bönkunum upphaflega, þetta eru vogunarsjóðir sem keypt hafa þessar kröfur á kannski 6% af nafnverði.
Þessir aðilar eru nú komnir með skotleyfi á íslenska skuldara, hvort heldur það eru heimili eða fyrirtæki.
Peningarnir sogast út úr landinu, þeir fara beint út úr íslenska hagkerfinu og nýtast ekki hér, ekki til atvinnusköpunar, ekki til fjárfestinga, þetta er glatað fé og það er óskiljanlegt hvernig íslenskur ráðherra, hvernig íslensk ríkisstjórn leyfir sér að semja um svona, að taka þá peninga sem áttu að fara í endurreisn hagkerfisins og afhenda þá útlendingum.
Ég heyrði í Steingrími J. Sigfússyni í fréttum í gær (21. maí 2011) þar sem hann talaði um að það hefði orðið margra ára dómsmál ef þetta hefði ekki verið gert svona.  Ég spyr, er það ekki einnar messu virði að bjarga íslensku atvinnulífi og íslenskum fyrirtækjum af hverju fælast menn það svo að standa á rétti Íslands.  Ég skil ekki svona.“
Nú tók Róbert Marshall orðið og síðan Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Róbert var afar ómálaefnalegur og var aðallega með í huga aðgerðir sem gætu varið ríkisstjórnina falli í kosningunum 2013, ég nenni ekki að hafa það eftir.
Rangheiður var ágætlega málefnaleg og studdi það sem Ólafur hafði þegar sagt, að bankarnir hefði ekki lengur hagsmuni af því að hjálpa fólki, eigendur bankanna hefðu það eitt að markmiði að hámarka endurgjaldið og minnka eigið tap og því herjuðu þeir grimmt á skuldara.
Ólafur hélt svo áfram, „... þessir kröfuhafar sem eiga bankana eru alveg sérdeilis óheppilegir eigendur banka, þetta eru vogunarsjóðir sem hafa keypt á kannski 6% af nafnverði og þeir þurfa bara að komast upp í 12 % þá er þeir búnir að tvöfalda fjárfestinguna og þá geta þeir labbað í burtu og þeim er alveg sama hvort bankinn eða hagkerfið hér er rjúkandi rúst, því þeir eru búnir að redda jólabónusnum hjá sér ...“
Er það nema von að maður verði foxillur, beinlínis öskureiður, það er okkar ríkisstjórn sem stendur fyrir þessu ástandi, vísvitandi og vel ígrundað.
Það eru Steingrímur og Jóhanna sem skilja þessa slóð eyðileggingar eftir sig.  Þjóðin á vonarvöl og þeim andskotans sama þvi það er með þau eins og vogunarsjóðina, þeim er hjartanlega sama þó allt sé hér í rjúkandi rúst, útlendingarnir eru sælir og sáttir og þau búin að redda jólabónusnum hjá sér.
Fokking fokk og ekki orð meira um það.
ih/grumpy old/11
Það góða er gleymt, enda angrar það okkur ekki hið minnsta.  Öðru máli gegnir með það sem við teljum vera rangt eða illt, það situr fast og fylgir okkur hvert sem við förum.  Ég þekki engan sem ekki á við eitthvað að stríða.  Sumir smátt og aðrir stórt en allir eitthvað.
En vitið þið, við megum hætta að refsa okkur fyrir það allt.  Við þurfum ekkert að réttlæta eða fyrirgefa sjálfum okkur, við þurfum bara að sjá, að sama hvað við höfum gert eða sleppt að gera þá var það rétt á þeirri stundu sem það gerðist og í því samhengi sem það var og við megum sleppa því.  Raunverulega, í alvöru.
Ef einhverjum finnst betra að fyrirgefa sálfum sér þá getur hann gert það, en það breytir engu og lagar ekkert.
Stillið ykkur fyrir framan spegil og kannist við sjálf ykkur, horfið á þessa mannveru með alla þessa kosti og galla, horfið á hversu smá hún er í alheimi og hversu auðvelt það er að stíga út af sporinu, norminu sem okkur hefur verið gert að fylgja.  Hvernig getum við annað en þótt vænt um þessa veru.
Það má stíga út af sporinu, meira að segja aftur og aftur, en það þarf ekki að gera það.  Við megum hætta núna, megum hætta að refsa sjálfum okkur og meðtaka öll lífsins gæði sjálfum okkur til handa.  Frið í okkur sjálfum.
Hjá sumum væru það peningar, og þá meina ég peninga og ekki græðgi, öðrum góð heilsa og enn öðrum eitthvað allt annað.
Við eigum allt gott skilið.  Sama hvernig allt hefur farið hjá okkur, sama hversu vitlaus okkur finnst við hafa verið og vera.  Sama hvað það heitir, við megum hætta núna.  Stoppa og segja, heyrðu já, ég má vera svona eins og ég er, má hætta að velta mér upp úr fortíð, hrekkjum og heimsku.  Frábært.
Munum bara hvað maðurinn sagði þarna forðum daga, „horfið inn á við og sjáið hvað það er sem þið óskið að sé og sjá það er þegar orðið.
Í alvöru, það er þannig sem það virkar.
Og ef við höldum svo áfram og segjum, „nei annars, er ekki viss, kannski, kannski á ég bara að halda áfram að hafa það svona skítt,“ þá er það þegar orðið.
Vöndum bara valið, því sjá það er þegar orðið.
ih/11